Eiginleikar
- Nærir húðina
- Mýkir húðina
- Gefur sætan ljúfan ilm
Notkun
Berðu vel á þurran líkamann.
Umvefðu húðina með dásamlegu Néroli & Orchidée líkamsmjólkinni okkar, en formúlan blandar saman ilmandi áhrifum tveggja hvítra blóma. Líkamsmjólkin er fullkomin til daglegrar notkunar og gefur húðinni fullkominn raka ásamt því að skilja eftir sig mildan ilm. Líkamsmjólkin inniheldur nerólí seyði frá Miðjarðarhafinu og seyði úr hvítum orkídeum frá Madagaskar sem gefa blómlegan og ávaxtarkenndan ilm. Néroli & Orchidée líkamsmjólkin er partur af ,,La Collection de Grasse“ línunni sem er nefnd eftir borginni Grasse, en hún er staðsett nálægt Miðjarðarhafinu í Provence. Borgin varð fljótlega þekkt sem ,,Ilmvatnshöfuðborg heimsins“ vegna sérfræðiþekkingar sinnar í gegnum aldirnar á ræktun arómatískra plantna, eimingartækni og notkun þeirra til að skapa sérstæða ilmi.
Aðalinnihaldsefni
Sólblómaolía
Ríkt af fitusýrum, hjálpar að næra og mýkja húðina.
Glýcerín
Þekkt fyrir að viðhalda raka og er rakagefandi. Mýkir hárið og hársvörðinn.
Shea smjör
Ríkt af Omega-6 og Karitene, inniheldur einstakar sameindir sem hjálpa við að næra og vernda húðina.
Ilmur úr Appelsínublómi Enfleurage
Appelsínublómið sem kemur frá ábyrgri birgðarkeðju er handtínt og síðan umbreytt með enfleurage aðferðinni sem er vel þekkt í Grasse, höfuðborg ilmvatnsgerðar. Þetta seyði gefur ávaxta- og sítrónukeim.
Ilmandi vanilluseyði
Frá ábyrgri birgðarkeðju, þar sem vanillan kemur frá hvítri orkídeu. Þetta vanilluseyði kemur frá vistfræðilegu ferli þar sem afurðirnar gefa okkur viðarkenndan og kryddaðan keim.
AQUA/WATER - CAPRYLIC/CAPRIC TRIGLYCERIDE - GLYCERIN - CETYL PALMITATE - BUTYROSPERMUM PARKII (SHEA) BUTTER - CETEARYL GLUCOSIDE - CITRUS AURANTIUM AMARA (BITTER ORANGE) FLOWER EXTRACT - VANILLA PLANIFOLIA FRUIT EXTRACT - HELIANTHUS ANNUUS (SUNFLOWER) SEED OIL - CITRUS AURANTIUM AMARA (BITTER ORANGE) FLOWER OIL - SORBITAN OLIVATE - XANTHAN GUM - CAPRYLYL GLYCOL - CETEARYL ALCOHOL - SODIUM STEAROYL GLUTAMATE - GLYCERYL CAPRYLATE - TOCOPHEROL - CITRIC ACID - PARFUM/FRAGRANCE - BENZYL SALICYLATE - LIMONENE - ALPHA-ISOMETHYL IONONE - CITRONELLOL - CI 77492/IRON OXIDES - CI 77491/IRON OXIDES