Flutningur

L'OCCITANE á Íslandi sendir vörur einungis á svæði innanlands. Allar pantanir fara í gegnum Íslandspóst eða Dropp. Ef kaupandi óskar eftir því að fá senda vöru utan Íslands bendir L'OCCITANE á alþjóðlegu vefsíðuna: www.loccitane.com.

Sendingarkostnaður bætist við pöntun áður en greiðsla fer fram. Vefverslun okkar er beintengd við póststoð Íslandspósts og sendingarkerfi Dropp og reiknast því sendingarkostnaður miðað við verðskrá þeirra. Enginn sendingarkostnaður er fyrir pantanir sem fara yfir 12.900 kr.
Hægt er að velja hvort varan fáist heimsend, í póstbox, pakkaport, póstbox eða send á afhendingarstað sem afhendingaraðili býður upp á. Sendingartími Póstsins og Dropp getur verið mismunandi eftir landshlutum.

Heimsending er einungis í boði innanlands og aðeins á þau svæði sem Íslandspóstur og Dropp býður upp á. Sjá nánar á vefsíðu Íslandspósts, www.postur.is og á vefsíðu Dropp, www.dropp.is