Vöruskil

Skilaréttur og vöruskil

L’OCCITANE skuldbindur sig til að afhenda kaupanda vöru í samræmi við skilmála þessa og gildandi lög.

Vörur keyptar í verslun

Kaupandi getur skilað vöru sem keypt er í verslun L’OCCITANE innan 30 daga gegn framvísun kvittunar eða reiknings.

Varan þarf að vera ónotuð, í upprunalegu ástandi og í óskemmdum umbúðum. L’OCCITANE áskilur sér rétt til að skoða vöruna áður en tekið er við skilum.

Við skil á ógallaðri vöru sem keypt er í verslun er gefin út inneignarnóta hjá L’OCCITANE. Inneignarnótu er hægt að nýta að vild í næstu kaupum hjá L’OCCITANE.

Útsöluvörum og ákveðnum tilboðsvörum fæst hvorki skilað né skipt.

Vörur keyptar í netverslun

Við kaup í netverslun hefur kaupandi 14 daga frá afhendingu vöru til að falla frá kaupunum án skýringa og fá vöruna endurgreidda, í samræmi við reglur um fjarsölu.

Til að nýta réttinn þarf varan að vera ónotuð, í upprunalegu ástandi og í óskemmdum umbúðum. Reikningur eða kvittun fyrir kaupum þarf að fylgja.

Endurgreiðsla fer fram með sama greiðslumáta og notaður var við kaupin, nema annað sé sérstaklega samið. Sendingarkostnaður vegna endursendingar er á ábyrgð kaupanda, nema um gallaða eða ranga vöru sé að ræða.

Gjafakort

Gjafakort fást ekki endurgreidd.

Hvernig er skilað?

Kaupandi getur skilað vörum í verslun L’OCCITANE í Kringlunni eða Smáralind eða haft samband við skrifstofu á netfanginu netverslun@loccitane.is eða í síma 545-0600.

Skrifstofan er opin mánudaga til föstudaga kl. 9:00–16:00.