
SKOÐA FLEIRI VÖRUFLOKKA
Lýsing
Eiginleikar
- Hjálpar til við að draga úr ójöfnum í húðinni.
- Eykur ljóma húðarinnar.
- Veitir samstundis raka.
Notkun
Berið á líkamann á kvöldin og nuddið varlega inn á þurr eða hrjúf svæði. Notið þrisvar sinnum í viku.
Kvöldrútína fyrir slétta og fallega húð:
Skref 1 – Hreinsa: Byrjið á að nota Almond Shower Oil sturtuolíuna til að hreinsa og mýkja húðina.
Skref 2 – Meðhöndla: Berið síðan Resurfacing Body Serum á húðina til að draga úr ójöfnum, bæta áferð hennar og stuðla að ljómandi og fyllra yfirbragði.
Skref 3 – Rakagefa: Ljúkið rútínunni með Almond Milk Concentrate líkamskremi sem hjálpar til við að auka mýkt og stinnleika húðarinnar án þess að skilja eftir klístraða tilfinningu.
Þú gætir einnig haft áhuga á:
Supple Skin Oil er silkimjúka leyndarmálið í möndlulínu L'Occitane. Olían hjálpar til við að bæta teygjanleika húðarinnar og veitir alhliða umhirðu fyrir húð sem er viðkvæm fyrir slitförum, auk þess að gefa henni fallegan og heilbrigðan ljóma.
Líkamsserumið inniheldur 5% AHA-sýrur sem veita milda húðflögnun, endurnýjandi þykkni úr kaktusfíkju (Prickly Pear) og rakagefandi hýalúrónsýru. Formúlan hjálpar til við að bæta ásýnd húðarinnar með því að vinna gegn sex algengum húðvandamálum: jarðarberjahúð (strawberry skin), förum eftir bólur, hrjúfri húð, inngrónum hárum, stífluðum svitaholum og fínum þurrkalínum.
Létt geláferðin veitir samstundis raka á meðan hún styður við náttúrulega varnarhjúp húðarinnar. Húðin verður sléttari, fyllri og ljómandi eftir notkun.
Formúlan inniheldur 94% innihaldsefni af náttúrulegum uppruna og hefur verið húðprófuð undir eftirliti húðlækna.
Innihaldsefni
Aðalinnihaldsefni
-
DÝNAMÍSK HÝALÚRÓNSÝRA
Getur aukið framleiðslu hýalúrónsýru í húðinni. Þéttir húðina og sléttir úr fínum línum.
Sjá lista yfir innihaldsefni (INCI listi)
AQUA/WATER/EAU - GLYCERIN - LACTIC ACID - METHYLSILANOL MANNURONATE - GLYCOLIC ACID - SODIUM HYDROXIDE - PARFUM/FRAGRANCE - HYDROLYZED OPUNTIA FICUS-INDICA FLOWER EXTRACT - HELIANTHUS ANNUUS (SUNFLOWER) SEED OIL - PRUNUS AMYGDALUS DULCIS (SWEET ALMOND) OIL - HYDROLYZED HYALURONIC ACID - XANTHAN GUM - METHYLPROPANEDIOL - LEVULINIC ACID - ARGININE - SODIUM LEVULINATE - PANTHENOL - BISABOLOL - 1 - 2-HEXANEDIOL - CAPRYLYL GLYCOL - TOCOPHEROL - SODIUM BENZOATE - CITRUS AURANTIUM BERGAMIA (BERGAMOT) PEEL OIL - COUMARIN - LIMONENE - LINALOOL - LINALYL ACETATE - PINENE - ROSE KETONES - TETRAMETHYL ACETYLOCTAHYDRONAPHTHALENES - VANILLIN
Your routine for a perfect skin
Ideal for those seeking expert care to smooth the skin and refine its texture. Treat yourself to a 3-step evening ritual for total body well-being.
Can be used as a treatment program, perfect for getting ready for summer.